Um okkur
Umbúðir & ráðgjöf ehf
Við höfum áratuga reynslu af því að þjóna íslenskum matvælafyrirtækjum í fremstu röð og leggjum metnað í að aðstoða okkar viðskiptavini með hraða, gæði og persónulegri þjónustu að leiðarljósi.
Yfir 30 ára reynsla
Fyrirtækið Pappír hf var stofnað árið 1988 af Sigurði Jónssyni og fjölskyldu hans. Umbúðir & Ráðgjöf ehf keyptu reksturinn í maí 2019.
Frá upphafi hefur Pappír sérhæft sig í sölu á búðarkassa- reiknivéla-og posarúllum og í seinni tíð einnig bætt við umbúðapappír, apótekarapokum og pappírsburðarpokum. Með auknum kröfum um gæði og öryggi vörunnar höfum við haldið okkur við gæði á pappír sem notaður er í kassarúllur og posarúllur.
Vinaleg og fagleg þjónusta
Árið 2008 keypti Pappír hf allar vélar prentsmiðjunnar Arnarprents. Starfsfólk Pappírs kappkostar að veita þá bestu þjónustu sem unnt er.
Meðal traustra viðskiptavina eru flestir stórmarkaðir landsins, apótek og bankar að ótöldum fjölda góðra fyrirtækja af öllum stærðum. Pappír annast dreifingu til viðskipavina á höfuðborgarsvæðinu með eigin bíl og að jafnaði er afgreiðslutími innan við einn sólarhringur.